Henrietta Ósk Gunnarsdóttir

Henrietta Ósk Gunnarsdóttir

Henrietta Ósk sinnir  greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum. Hún sinnir að mestu þeim sem upplifa óþægilegar kynferðislegar hugsanir, hafa áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni eða beitt kynferðisofbeldi. Þá hefur hún einnig víðtæka reynslu af því að vinna með reiði- fíkni og kvíðavanda og ofbeldishegðun.  

Hún er einn af stofnendum úrræðisins Taktu skrefið og sinnir meðferð fyrir einstaklinga sem hafa áhyggjur af kynferðislegri hegðun og/eða hugsun sinni eða jafnvel verið sakað um óæskilega kynhegðun.


Handleiðsla
Sækir hún reglulega handleiðslu og nýtur ráðgjafar frá sérfræðingum og samstarfsfólki sem starfar á mismunandi sviðum geðheilbrigðisþjónustu.

Önnur störf
Henrietta Ósk starfar einnig sem sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun ríkisins og er í sérhæfðu teymi á vegum Barnaverndarstofu sem sinnir sálfræðiþjónustu vegna óviðeigandi kynhegðunar barna.

Menntun
Henrietta Ósk lauk BA prófi í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri 2014 og fór í framhaldinu í nám í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands og lauk þaðan MA gráðu í febrúar 2017. Útskrifaðist hún með Msc gráðu í klínískri sálfræði vorið 2019 frá Háskólanum í Reykjavík og fékk starfsleyfi sama ár. Hún hefur einnig sótt ýmis námskeið, vinnustofur og ráðstefnur bæði hérlendis og erlendis. Henrietta Ósk hefur sömuleiðis lokið bóklegum hluta náms sem veitir sérfræðivottun í atferlisgreiningu (Board Certified Behaviour Analyst Examination).

Sálfræðingur