Elísabet Ósk Vigfúsdóttir
Elísabet er menntuð fjölskyldufræðingur, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur. Hún hefur einnig lokið námi í Hugrænni atferlismeðferð og MÁPM námi í meðvirkni- og áfallameðferð sem er aðferð til þess að vinna með einstaklinga sem orðið hafa fyrir áföllum í uppvextinum sem síðar á lífsleiðinni hafa áhrif á þroska, líðan og hegðun einstaklings.
Einnig hefur hún tekið viðbótarnám í parameðferð og sérhæft sig enn frekar og öðlast þekkingu og skilning á parasambandinu og þeim helstu áskorunum sem pör mæta eins og ágreining, samskiptum, kynlífi og foreldrahlutverkinu. Í kjölfarið tók hún næsta stig og öðlaðist alþjóðlega löggildingu í námskeiðshaldi fyrir pör PREP (Prevention and Relationship Enhancement Program). Sú aðferð byggir á vísindalegum og margreyndum aðferðum við að hjálpa pörum að snúa við neikvæðu samskiptarmynstri og temja sér uppbyggilegar samskiptaleiðir sem styrkja parasambandið. Samkvæmt National Research and Analysis Centre for Welfare (VIVE) er PREP besta vísindalega rannsakaða paranámskeið í heimi. Elísabet hefur einnig lokið námi sem sáttamiðlari og viðbótarnámi í meðferðarvinnu með foreldrum og börnum í skilnaðarferli og þjálfun í meðferðarsamtölum við foreldra sem eiga í miklum ágreiningi í kjölfar skilnaðar.
Í meðferðarvinnu leggur Elísabet mikinn metnað í að mæta einstaklingum á jafningjagrundvelli og af fordómaleysi. Hún sér mikilvægi í því að vinna með rót vandans og notast við tilfinningalega meðferðarnálgun, verkfæri jákvæðrar sálfræði, lausnamiðamiðaða nálgun og hefur tengslakenningar að leiðarljósi.
Elísabet býður m.a. upp á:
- Einstaklings- og fjölskyldumeðferð
- Parameðferð/hjónabandsmeðferð
- Áfalla og meðvirknimeðferð
- Skilnaðarráðgjöf, forsjár- og umgengnismál
- Ráðgjöf fyrir stjúpfjölskyldur
- Sáttamiðlun í almennum samskiptaerfiðleikum og ágreining innan fjölskyldna.
- Sérhæfða þjónustu fyrir foreldra með börn eða verðandi foreldra sem glíma við vanlíðan, geðrænan og/eða vímuefnavanda eða hafa áhyggjur af þroska og/eða tengslamyndun til barns
- Einstaklings og fjölskylduráðgjöf vegna fíkni- og/eða vímuefnavanda
Eins er hún með námskeið fyrir pör sem miða að því að styrkja parasambandið, nándina og tengslin í barneignarferlinu.
Elísabet býður upp á meðferð á íslensku og dönsku.
Menntun:
2024 – 2024 Sérhæfing: Knowledge and tools for working with high-conflict divorces with a focus on professionals' therapeutic conversations with parents in high-conflict divorces. Center for familieudvikling
2024 – 2024 Sérhæfing: Knowledge and tools for working with parents and children in the divorce process and the basic thinking and approach in therapeutic work. Center for familieudvikling
2023 – 2023 Sérhæfing og nám í sáttamiðlun: Sáttamiðlaraskólinn
2023 – 2023 Sérhæfing og alþjóðleg löggilding: Certification in conducting courses for couples “PREP” (Prevention and Relationship Enhancement Program). Center for familieudvikling
2023 – 2023 Sérhæfing: Knowledge and tools for working with couples. Center for familieudvikling
2022 – 2022 MÁPM meðferðaraðili (Meðvirkni og áfallameðferð Piu Mellody).
2020 – 2022 Nám í fjölskyldumeðferðarfræði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
2015 – 2016 Nám í Hugrænni atferlismeðferð hjá Endurmenntun Háskóla Íslands Diploma.
2010 – 2013 Ljósmóðurfræði (Candidata Obstetriciorum) frá Háskóla Íslands.
2005 – 2008 BSc Hjúkrunarfræði. University College Lillebælt, Vejle, Danmörk.
2001 – 2004 Tæknistúdent Vitus Bering og sjúkraliðanám (social og sundhedshjælper). Social og sundhedsskolen Horsens, Danmörku.
Elísabet er með starfsleyfi frá Embætti landlæknis
Fjölskyldufræðingur